Heeeelo!
|
|
Sunday, May 01, 2005
Jæja þá er kominn tími á smá blogg. (Er ég lélegur bloggari?)
Það er búið að gerast margt og mikið síðan síðast (eins og alltaf...) Litli bróðir Aron er búinn að fermast, við fjölskyldan höfðum frábært páskafrí í Omo Rate, við fórum nokkur í Langano ferð, ég fór með unglinaskólanum til Harar og Diri Dawa (Austur Eþíópíu, æðislegur staður) og var í hestaferð í Ambó í gær. Ég er búin að taka miljón myndir, reyni kannski að setja einhverjar á myndasíðuna mína á næstunni.
(Ég og Gunnar að veiða í Ómó ánni)

Annars er allt í góðum gír. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Fólk er byrjað að pakka niður í tunnur og ferðafílingur er kominn í suma. Það er ótrúlegt að það er bara 1 og hálfur mánuður eftir!
Við fjölskyldan ætlum í frí til Mombasa í Kenýu á leiðinni heim, það verður frábært! Við komum síðan til Íslands þann 2. júlí. Ég hlakka mikið til að koma heim og hitta ættingja og vini, það verður æði.
Ég á samt eftir að sakkna Eþíópíu mjög, það gæti liðið langur tími þangað til ég kem hingað næst.
Já það eru margir búnir að spyrja mig hvað ég ætla nú að gera á næsta ári! Ég sótti um í læknisfræði í Noregi fyrir stuttu! Ég ákvað það bara rétt áður en fresturinn til að sækja um rann út! Þannig að hvort sem ég kemst inn eða ekki þá er planið að flytja til Noregs næsta haust! En Norge er nú miklu nær Íslandi en Eþíópía :o)
Jæja þá ætla ég að skreppa út og borða WOTT (hí hí). Í dag er eþíópískur páskadagur, og fastan er búin.. maður verður nú að halda upp á það, með almennilegum Doro wott!
Læt þetta duga í bili, vonandi líður ekki eins langur tími þangað til ég skrifa næst!! (ef það líður jafn langur tími verð ég komin til Íslands áður!!!)
Hafið það gott þangað til,
knús Ingunn :o)
P.s. Hverjir eru meistarar í ensku deildinni? Úúúúúúje!
(Kameldýr í Diri Dawa)
Posted at 04:31 pm by ingunnbjarna
Permalink
Thursday, March 03, 2005
Góðan daginn :o)
Þá er kannski kominn tími á smá skriferí. Ég er búin að vera allt of léleg að svara mailum og svoleiðis upp á síðkastið, þið verðið að afsaka, ekki nógu gott! (ég hugsa samt mikið til ykkar :o)
 Það er búið að gerast margt skemmtilegt síðan ég skrifaði síðast. Það var æðislegt að fá Tarzaninn minn hingað til mín og erum við búin að brallara margt skemmtilegt saman.
Í byrjun febrúar voru risa stórir tónleikar hérna í Addis Abeba. Þetta voru tónleikar í tilefni af 60 ára afmæli Bob Marley. Það komu ýmsir frægir listamenn, svo sem Angelique Kidjo, Lauren Hill og Ziggi Marley (sonur Bob Marley) og fleiri úr Marley fjölskyldunni. Það var æðisleg stemmning og mættu um 250.000 manns.
Um miðjan febrúar var "Konferansen i Awasa". Þar mættu allir kristniboðarnir og voru ráðstefnur, samkomur og ýmislegt skemmtilegt. Ég og Gunnar sáum um unglingastarfið, það var rosa stuð. Í frítímanum spiluðum við mikið blak og fótbolta, spiluðum spil, syntum og "sólböðuðum" okkur og steiktum Marshmallows, ekki amarlegt það!!
(Myndirnar eru frá Awasa)

Vinnan mín gengur bara mjög vel. Það er rosalega mikið að gera. Ég er að sjá um ýmislegt, Tensing, fótboltaæfingar, blak (við lentum í 3/4 sæti í blak keppninni), spilatíma, tónmenntakennslu í unglingaskólanum og ýmislegt annað. Síðan er ég mikið á vakt á heimavistinni og finn einnig upp á ýmislegu fyrir litla eða stóra hópa (allt frá því að baka pizzur til að spila míní golf, horfa á bíómyndir eða fara í vatnsstríð). Þetta er allt mjög skemmtilegt, stundum er ég bara soldið þreytt og hef ekki mikla orku fyrir mikið annað!! En ég reyni að æfa mig stundum á hljóðfærin mín og lesa smá, og síðan hef ég mjög ágætan gaur sem gerir lífið mjög skemmtilegt!! Það eru einnig margir á mínum aldri hérna núna, alltaf fólk að koma og fara! Þannig að það er alltaf nóg að gerast!
Við ætlum til Langano næstu helgi, ég, Gunnar, Elías og fimm aðrir. Ég hlakka mjög mikið til, Langano is so beautiful to me! (við erum búin að búa til mjög fallegt lag um Langano: Langano, you are so so beautiful to me.... Where are you go, I´m going to Langano... la la la la...)
Ég vona að þið séuð öll hress og hafið það gott, miss you.
Bless í bili,
Knús knús :o)
Posted at 02:56 am by ingunnbjarna
Permalink
Wednesday, January 19, 2005
Jæja, þá er bara komið nýtt ár, vonandi hafið þið öll haft það fínt um jólin. Ég er búin að hafa það alveg frábært, búin að ferðast mikið með fjölskyldunni og virkilega slappað af.
Núna er ég komin upp til Addis aftur og skólinn byrjaður á fullu, blakmót í fullu gangi (okkur gengur mjög vel by the way, erum búin að vinna fyrstu tvo leikina), við erum að fara að byrja með tensing og margt annað í gangi. Ég er að fara í viku ferðalag með 5-7 bekk á laugardaginn á stað sem heitir Bale, mjög fallegur staður.
En loksins get ég nú skrifað um það sem þið elskurnar eruð búin að vera að forvitnast um síðan ég skrifaði á þessa síðu að "ástin liggur í loftinu".
Ég var á fundi í gær með yfirmanninum hérna á lóðinni. Ástæðan fyrir þessum fundi var að ég var að sækja um að fá að byrja með strák. Já, já. Og fékk ég sem sagt formlegt leyfi til þess að byrja með strák.
Þessi æðislegi strákur heitir Gunnar og sér um fótboltastarf fyrir götustráka hérna úti í Eþíópíu. Við þekktumst þegar við vorum yngri (kynntumst hérna í Eþíópíu), þekktumst mjög vel eiginlega, vorum saman í tvö ár (byrjuðum saman þegar ég var 13 og hann 15:o).
Það var mjög sérstakt að hittast hérna í Eþíópíu aftur og kynnast aftur, sem fullorðnir einstaklingar. Við höfum svo mikið að tala um og við erum svo lík á margan hátt. Guð er svo góður við mig :o)
Gunnar er í Noregi núna en kemur hingað aftur þann 3. febrúar, ég get ekki beðið!
Au revoir....
Posted at 05:06 am by ingunnbjarna
Permalink
Sunday, December 19, 2004

Jæja þá leggjum við af stað í jólafrí í fyrramálið. Við verðum í Omo Rate fyrst í nokkra daga og förum síðan í frí til Arba Minch, Awasa og Langano, komum upp til Addis kringum 10. jan.
Megi Guð gefa ykkur öllum
GLEÐILEG JÓL
og
FARSÆLT KOMANDI ÁR,
takk fyrir allt á liðnu ári, heyrumst á nýju ári,
Posted at 06:03 am by ingunnbjarna
Permalink
Tuesday, November 30, 2004
Gleðilegan fyrsta sunnudag í aðventu í gær! Núna er ég búin að skreita íbúðina mína, jólastjarnan komin upp, jólasería hjá skjaldbökunum og fullt af jólaskrauti, krakkarnir voru hérna hjá mér í gær og hjálpuðu mér að skreyta.
Og núna sit ég hér og hlusta á Nat King Cole syngja um hin fyrstu Noel... Vantar bara smá snjó og jólafílingurinn er fullkominn. Snjóar annars á Íslandi þessa dagana?
 Við tókum þátt í The great Ethiopian run í gær. 20 þúsund manns tóku þátt og hlupu 10 km. Þetta var rosa gaman og stemningin alveg ótrúleg. Það er Haile Gebre Selassie sem stendur fyrir þessu hlaupi og er þetta styrktarhlaup fyrir AIDS í Eþíópíu.
Á myndinni hér fyrir neðan sést Haile og við hliðiná honum er leikarinn sem leikur í Leathel weapon á móti Bruce Willis, man ekki hvað hann heitir. Já, já frægir og ekki jafn frægir tóku þátt í þessu hlaupi og giskiði hver kom í sjónvarpið!!
Já athyglin hefur verið rosaleg í dag, hey þú varst í sjónvarpinu í gær, jó Ingunn sá þig í sjónvarpinu í gær, gott hlaup hjá þér í gær Ingunn... Ekki það að ég hljóp á einhverjum met tíma, en maður kemst nokkuð langt á því að vinka eins og brjálæðingur í allar myndavélar sem maður sér!!

Posted at 01:26 am by ingunnbjarna
Permalink
Monday, November 15, 2004

Datt í hug að setja inn link frá Sukkertoppen, sem þið getið skoðað hér. Og endilega lesið textann undir myndunum vel, því hann lýsir því mjög vel hvað er að gerast á myndunum, enda mjög erfitt að sjá það; á leiðinni upp á fjallið, uppi á fjallinu, á leiðinni niður fjallið..... Ég og skriferí undir myndum!
Hér í Eþíó er allt rosa brosa gott. Var að koma frá flugvellinum. Mamma var að koma frá Omo Rate, hún ætlar að vera hér í Addis í 2 vikur, pabbi kemur á fimmtudaginn.
Um helgina fór ég með unglingaskólanum til Babagayo, fallegur staður, ca. klst. keyrslu frá Addis. Fórum með fullt af Amerikönum. Við lærðum geggjað skemmtilegt lag: There was a boy, de de rerererere, there was a girl, de de rererere, they drove a car, de de rerererere, to the beach de de rerererere.... And there were sharks, aaah! Papa shark da da rarararara, mama shark da da rarararara.... Okey, þetta lag er miklu skemmtilegra með hreyfingum.
Posted at 11:43 pm by ingunnbjarna
Permalink
Tuesday, November 02, 2004
Jæja þá er kominn tími á smá lífsmark frá mér! Fríið niðri í Omo Rate var alveg frábært, tíminn leið bara allt allt of hratt. En ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá fríinu á myndasíðuna mína sem þið getið kíkt á hér: Omo Rate
Annars er búið að gerast mikið síðan ég skrifaði síðast. Ég er búin að fara í nokkrar ferðir meðal annars dagsferð á Sukkertoppen (fjall) og fimm daga frí til Langano. Já lífið er æðislegt hérna. Vinnan mín gengur bara vel, við erum til dæmis að fara að spila fótboltaleik á morgun, ég og Helle (dönsk stelpa sem vinnur á leiksskólanum hérna) þjálfum þessar elskur, og allir eru með þótt sumir kunna ekkert í fótbolta og við erum að fara að spila á móti 100 sinnum stærri skóla en okkar, heia DNS!
Já já og ástin liggur í loftinu og allir eru í góðum fíling. Skrifa fljótt aftur.
Posted at 11:08 pm by ingunnbjarna
Permalink
Wednesday, October 06, 2004
Komidi sæl my loves! Erudi ekki hress?
Langadi bara ad setja inn nokkrar linur, er nebblega ad fara i haustfri, vid leggjum af stad til Omo Rate eftir 2 klst., og verdum thar i eina og halfa viku. Thetta verdur ædislegt, verdum medal annars med tvø agætis motorhjol til ad leika okkur a og thad verdur alveg frabært ad vera fjølskyldan saman. Vid faum einnig heimsokn fra nokkrum agætis piltum og skemmir thad ekki fyrir!!
Eg Skrapp til Langano sidustu tvær helgar, fyrstu helgina var eg i frii, hina helgina for eg med krøkkum a skolanum, thetta voru alveg stor skemmtilegar helgar. Eg tok nokkrar myndir i fyrri ferdinni, sem hægt er ad skoda Her.
Annars er bara allt i goodie, allir hressir og katir. Hafid thad rosa brosa gott,
heyrumst :o)
Posted at 05:22 am by ingunnbjarna
Permalink
Thursday, September 16, 2004
Thad er svo ædi ad Champions League er byrjad, og vid getum horft a næstum alla leikina herna, meira ad segja FH - Aachen, ya life is nice.
Eg klaradi ad setja inn myndir fra Noregi her um daginn, sem hægt er ad skoda her: Noregsferd!
Hvad er annars ad gerast a froni thessa dagana??? Thid verdid ad segja forvitnum afrikubua einhverjar skemmtilegar frettir :o)
Posted at 12:39 pm by ingunnbjarna
Permalink
Saturday, September 11, 2004
Tha er arid 1997 gengid i gard herna i Ethiopiu. Thvi var fagnad med gridar flottri flugeldasyningu i bodi Sheraton hotels. Vid skruppum ut i bæ nokkur saman og bordudum godan mat og flippudum sidan a studara kaffihusi (eingar nanari lysingar).
Dagurinn i dag er buinn ad vera alveg frabær. Eg, Elias og Bjarte løgdum af stad i morgun til Nazaret, eg keyrdi a motorhjolinu ad sjalfsøgdu (thau voru i hlaturskasti thegar vid komum til Addis aftur, eg var vist mjøg svørt i framan!) eg atti nefnilega fridag i dag, thannig ad vid akvadum ad skreppa i dagstur. Vid stoppudum a mjøg finu hoteli og syntum og sleiktum sol, eins og vel ma sja a mer nuna, sit her eins og vel throskadur tomatur.
A morgun ætlum vid Bjarte ad setja Rastaflettur, einnig thekkt sem dreddar, i Elias. Settum dredda i Aron sidustu helgi, kom bara frekar vel ut, thank you very nice. Thannig ad eg ætti kanski ad fara ad hvila rauda faceid mitt og vindkeyrdu augun thannig ad eg geti stadid straight i 8 klukkutima a morgun og mjakad vaxi inn i ljosu lokkana a undurblida brodur minum (veit ekki alveg hvadan thetta kom!)
Well, Booosfraba.
Posted at 02:18 am by ingunnbjarna
Permalink
|
|
|